 |
|
Síldin er oft réttilega nefnd silfur hafsins og gæti það verið réttnefni á tvo vegu,annarsvegar er verðmæti þessa fiskjar meira en flestra annarra og á hinn bóginn er silfraður litur fisksins svo fagur að líkja má við eðalmálm.Síld er oftast um 30-40 cm löng og vegur þá um 500gr. Hún er dekkst á bakinu og gróft hreystrið glitrar í mörgum daufum litum frá fjólu-rauðu yfir í grænt og allt þar á milli. Síld er uppsjávarfiskur sem syndir um í stórum torfum. Síldin í N-Atlantshafi greinist í marga stofna sem hrygna á misjöfnum tíma á mismunandi hafsvæðum og eru sérfræðingar búnir að leggja mikla vinnu í að aðgreina þessa stofna svo hægt sé að skipta eignarhaldi á kvótum og deila þeim verðmætum sem síldin skapar, réttilega milli þeirra þjóða sem telja sig eiga hlut að máli.Síldin er svifæta eins og flestir smærri uppsjávarfiskar. Saga síldveiða er saga gullæðis og hruns en margar slíkar eru til frá síðsta árhundraði. Með strangri vernd og skipulagi hefur nú tekist að láta flesta stofnana rétta nokkuð úr kútnum, og verður vonandi ekki aftur gengið svo nærri þessum stofnum aftur. |
Posted at 02:46 pm by Vilhelmh